Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Jólatré í Reykjavík hirt á nýju ári af íþróttafélögum

18.12.2009

Jólatré í Reykjavík verða hirt á nýju ári af íþróttafélögum og sorphirðufyrirtækjum ef óskað er.

Íþróttafélög í Reykjavík, í samstarfi við Íslenska gámafélagið, munu á nýju ári bjóða borgarbúum upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Skógræktarfélag Reykjavíkur og Gámaþjónustan eru einnig í samstarfi um hirðingu jólatrjáa. Hægt er að panta hirðingu trjáa á netinu. Trén nýtast til jarðgerðar og efla skógrækt.

Er þetta gert í samráði við Reykjavíkurborg.  Íþróttafélögin sem hyggjast nota verkfnið til fjáröflunar starfsemi sinnar munu flest fara um hverfi borgarinnar með kerrur og bjóða fólki að flytja trén í endurvinnslu gegn gjaldi.

Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu. Borgarbúar geta annað hvort farið sjálfir með jólatrén sín endurgjaldslaust á endurvinnslustöð eða keypt þjónustuna hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum. Sorphirða Reykjavíkur hirðir ekki jólatré.

Tenglar

Upplýsingar frá Íþróttafélögum og Íslenska gámafélaginu

http://www.gamar.is/index.php?option=com_g-jolatresofnun&Itemid=125

http://www.gamur.is/index.php?option=content&task=view&id=112&Itemid=140

www.sorpa.is