Í samráði við foreldra barna í Vesturbæjarskóla, skólastjóra og stjórnendur frístundastarfs hefur verið ákveðið að færa frístundastarf yngstu bekkjardeilda inn í skólann.
Grasagarðurinn býður elstu börnum leikskólanna í fræðsluheimsóknir í september. Í þeim kynnast börnin því m.a. hvernig hlúa má að blómum svo þau vaxi og dafni.
Fyrsti skóladagurinn á þessu hausti fór vel af stað í Klébergsskóla og voru nemendur ánægðir að mæta aftur í skólann. Einn af yngri nemendunum hafði þetta á orði í miðri kennslustund í textílmennt: „Það er svo gaman í skólanum að ég vildi að ég ætti heima hérna“.
Börnin í leikskólunum Bakka og Bergi hafa undanfarna daga tekið fagnandi við gjöfum jarðar, en nú er uppskerutími hjá þeim. Leikskólarnir tveir eru nú reknir saman undir stjórn Ingibjargar E. Jónsdóttur.
Menntaráð samþykkti á fundi sínum 25. ágúst að skipa starfshóp til að marka stefnu um tónlistarfræðslu í samstarfi við skólastjóra, tónlistarkennara og aðra sérfræðinga. Hann á að hafa að leiðarljósi að efla fagvitund, kostnaðarvitund og jafnræði í tónlistarnámi og starfsemi tónlistarskóla í Reykjavík.
Fyrsti skóladagurinn í nýjum skóla í ÚlfarsárdalSkólasetning í grunnskólum borgarinnar Rafræn skráning í mataráskrift hjá grunnskólunum Ársskýrsla 2009 komin útAðgerðir til að bæta námsárangur drengja
Skoða allar fréttir