Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki

14.01.2010

STYRKIR ÚR HÚSVERNDARSJÓÐI REYKJAVIKURBORGAR

Húsverndarsjóður Reykjavíkur auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.

Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.

2. Tímaáætlun.

3. Kostnaðaráætlun.

4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmyndir ef þær eru til.

Umsóknareyðublað (PDF)

Frekari upplýsingar eru veittar í Fræðslustofu um húsvernd í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 16-18 og í síma 411 6333 á sama tíma.

Umsóknum skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem er að finna á vef Skipulags- og byggingasviðs, www.skipbygg.is og vef Minjasafns Reykjavíkur www.minjasafnreykjavikur.is. Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14.

Umsóknir skulu berast Skipulags- og byggingasviði Reykjavíkur, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: skipulag@reykjavik.is, í síðasta lagi 15. febrúar 2010.

Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað var 2009 og ekki hafa verið nýttir falla niður við úthlutun 2010.