Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fréttir

Skólar hvattir til að taka þátt í tannverndarviku

27.01.2010

Tillögur starfshóps um bætta tannheilsu grunnskólabarna voru kynntar í menntaráði 27. janúar. Meðal þess sem lagt er til er að leik- og grunnskólar nýti sér árlega tannverndarviku til að beina sjónum barna að mikilvægi tannhirðu.  Tannverndarvika Lýðheilsustöðvar verður haldin 1.-5. febrúar nk.

Starfshópur um bætta tannheilsu var settur á laggirnar á vormánuðm að tillögu leikskólaráðs og menntaráðs. Hann fékk það hlutverk að skoða og koma með hugmyndir um aðkomu leik- og grunnskóla í átaki til bættrar tannheilsu barna og unglinga. Hópurinn er ljúka störfum og mun skýrsla hans líta dagsins ljós innan skamms.  

Nánari upplýsingar um tannverndarvikuna og efni til að nota við fræðslu um tannhirðu og tannvernd er að finna á vef Lýðheilsustofnunar. 

Sjá fundargerð 114. fundar menntaráðs 27. janúar.