Barnamenningarhátíð í vor
25.01.2010
Fyrsta barnamenningarhátíð Reykjavíkur verður haldin vikuna 19. - 25. apríl. Með henni er ætlunin að skapa vettvang fyrir barnamenningu og menningarstarfsemi fyrir börn. Markmið hátíðarinnar er líka að efla umræðu um gildi barnamenningar fyrir samfélagið og gera hana sýnilega.
Vonast er til að barnamenningarhátíð verði grundvöllur fyrir skapandi tilraunastarf og samvinnu í borgarhverfum. Á hátíðinni gefst tækifæri fyrir börn og starfsfólk skóla til að sýna listrænar afurðir vetrarins, búa til viðburði eða vinnustofur með það að markmiði að hvetja börn til dáða á sviði lista og skapandi starfs.
Að skipulagningu hátíðarinnar koma Reykjavíkurborg, grunn- og leikskólar, söfn og aðrar menningarstofnanir, íþrótta- og frístundafélög auk frjórra einstaklinga um alla borg. Tengiliður á Leikskólasviði er Fríða Bjarney Jónsdóttir og á Menntasviði Laufey Ólafsdóttir.