Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fréttir

Viðbrögð við öskufalli

19.04.2010

Ákveðið hefur verið að ef komi til öskufalls í Reykjavík frá Eyjafjallajökli skuli foreldrar styðjast við áætlun um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs.

Almannavarnir meta ástandið tilkynna um nauðsynleg viðbrögð ef öskufall verður á höfuðborgarsvæðinu.

Samkvæmt reglum sem gefnar voru út um röskun á skólastarfi vegna óveðurs er það á ábyrgð foreldra að taka ákvörðun um hvort senda eigi börn í skólann þegar veður er vont.

Viðbúnaðarstigin eru tvö. 
Viðbúnaðarstig 1: Röskun verður á skólastarfi vegna erfiðleika starfsfólks og nemenda við að komast til skóla – foreldrar fylgi börnum í skólann.
Viðbúnaðarstig tvö: Skólahald fellur niður.

Sjá viðbragðsáætlun.

Sjá leiðbeiningar vegna öskufoks gefið út af Landlæknisembættinu, Umhverfisstofnun og Ríkislögreglustjóra.