Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Fréttir

Víkingar í Vesturborg

04.02.2010

Á Þorranum er unnið með fornar sögur og gamla siði í leikskólum borgarinnar. Börnin í Vesturborg héldu sitt þorrablót á dögunum og fengu fornkappann Úlfar Daníelsson í heimsókn. Hann skemmti börnunum með ýmsum fróðleik um víkingatímann og sýndi þeim ýmsa muni sem þá voru notaðir. Meðal annars sýndi hann þeim vopn og fatnað eins og víkingar notuðu og sagði frá því hvernig börn klæddust á þeim tíma. Leikskólabörnin mættu í þorrablótið í sínum þjóðlega klæðnaði og snæddu með góðri lyst hákarl, punga og súrt slátur. Myndirnar tala sínu máli.