Aftur á forsíðu borgarhlutans.
 Hausthátíð
 Laugardalsvöllur
Laugardalshöll

Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða

Forstöðumaður: Sigurður Hólm Gunnarsson

Velferðarsvið og Svæðisskrifstofa Reykjavíkur eru með þjónustusamning um Búsetuþjónustu- og stuðningsþjónustu við geðfatlaða. Starfseminni tilheyrir búsetuþjónusta við íbúa að Gunnarsbraut 51, stuðnings- og heimaþjónusta við íbúa í þjónustukjarnanum að Skarphéðinsgötu 14-16 og stuðningsþjónusta við sjálfstætt búandi einstaklinga. Gert er ráð fyrir 3 ára búsetu að Gunnarsbraut þar sem markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun, hvetja til hverskonar virkni og takast á við athafnir daglegs lífs. Í stuðnings- og heimaþjónustu felast verkefni heimaþjónustu og frekari liðveislu þegar ljóst er að hin almenna stuðningsþjónusta er ekki nægjanleg.

 

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is