Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Skáksveit Rimaskóla vann Norðurlandamót grunnskóla

01.09.2008

Íslandsmeistara- og Reykjavíkurmeistarasveit Rimaskóla í skák vann Norðurlandamót grunnskóla sem fram fór í Osló helgina 29. - 31. ágúst. Á þessu móti mætast sterkustu skáksveitir í grunnskólum allra Norðurlandanna og tefla innbyrðis, allir við alla. Rimaskóli gerði jafntefli við sænsku meistarna í 1. umferð en settu síðan í gírinn og vann allar hinar þjóðirnar örugglega.

Í síðustu umferðinni lágu Danir í því þegar Rimaskólakrakkarnir unnu dönsku meistarana 4 - 0 og enduðu mótið fjórum vinningum fyrir ofan næstu sveit með 14,5 vinninga af 20 mögulegum. Hjörvar Steinn Grétarsson 10-R sýndi enn og aftur hversu sterkur skákmaður hann er og náði bestum árangri á 1. borði. Sigríður Björg Helgadóttir sem er að hefja nám í MR náði bestum árangri á 3.borði og hinn efnilegi Jón Trausti Harðarson 11 ára náði bestum árangri varamanna. Hann vann tvær skákir af þremur. Rimaskóli þakkar Menntaráði Reykjavíkur fyrir veglegan fararstyrk til þátttöku í þessu sterka skákmóti.

Norðurlandameistarar: Skáksveit Rimaskóla

Norðurlandameistarar: Skáksveit Rimaskóla.Davíð Kjartansson þjálfari, Jón Trausti Harðarson 6-A, Sigríður Björg Helgadóttir, Dagur Ragnarsson 6-B, Hörður Aron Hauksson 10-T, Hjörvar Steinn Grétarsson 10-R og Helgi Árnason skólastjóri sem var fararstjóri á mótinu.

Borðaverðlaunahafar. Rimaskóli átti þrjá af fimm verðlaunahöfum, Jón Trausta, Sigríðu björgu og Hjörvar Stein

Borðaverðlaunahafar. Rimaskóli átti þrjá af fimm verðlaunahöfum, Jón Trausta, Sigríði Björgu og Hjörvar Stein.

Til hamingju Rimaskóli!!