Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Rykbinding hélt svifryksmengun undir mörkum

09.02.2010

Rykbinding gatna, til að koma í veg fyrir svifryksmengun yfir heilsuverndarmörkum, heppnaðist mjög vel um liðna helgi. Bindingin var gerð aðfaranótt föstudags og virðist enn í dag, þriðjudag, gera gagn.

Styrkur svifryks (PM10) hefur farið þrisvar sinnum yfir heilsuverndarmörk á árinu við gatnamót Grensásvegar og Miklubrautar. Síðast fór styrkurinn þar yfir mörkin 27. janúar en þá mældist sólarhringsstyrkurinn 72,6 míkrógrömm á rúmmetra. 

Farstöð til mælinga hefur frá jólum verið staðsett á horni Miklubrautar og Stakkahlíðar og hefur styrkur svifryks frá áramótum farið þar fjórum sinnum yfir mörkin. Rykbindingin aðfaranótt föstudags kom í veg fyrir að farið yrði þar í fimmta sinn yfir heilsuverndarmörkin. Síðast fór styrkur svifryks á þessu umferðarhorni yfir fimmtudaginn 4. febrúar og mældist þá 95,6 míkrógrömm á rúmmetra.

Veðurskilyrði hafa undanfarið verið kjörin fyrir svifryksmengun, því götur hafa verið þurrar og vindur og hiti lítill. Rykið er bundið með saltpækli eða magnesíumklóríð.

Viðbragðsteymi Reykjavíkurborgar fylgist með loftmengun í borginni, sendir út viðvaranir og grípur til aðgerða eins og að rykbinda umferðagötur þegar þörf þykir. Fylgjast má með styrks svifryks á mæli á heimasíðunni www.reykjavik.is

Tengill

Viðbragðsáætlun

Hornið Miklubraut - Stakkahlíð, mælingar 2007-2008