Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Öll börn sem verða tveggja ára á árinu 2010 fá leikskólapláss

09.02.2010

Á fundi leikskólaráðs 3. febrúar var lögð fram spá borgarhagfræðings um þörf fyrir leikskólapláss byggða á fæðingartölum frá árinu 2009. Samkvæmt henni mun börnum frá 6 mánaða aldri og fram að skólaskyldualdri fjölga um 21 barn á árinu 2010 en fækka svo aftur árið 2011, (voru 9.518 á árinu 2009, verða 9.539 á þessu ári og 9.463 á árinu 2011).

Haustið 2010 fara 1.355 börn úr leikskólum í Reykjavík í grunnskóla. Samkvæmt áætlun borgarhagfræðings verða 1.658 tveggja ára börn í Reykjavík árið 2010. Nú þegar eru rúmlega 700 börn, sem fæddust á árinu 2008 komin inn í leikskóla. Því er gert ráð fyrir að unnt verði að bjóða öllum börnum sem verða tveggja ára á árinu leikskólapláss og ríflega 300 börnum að auki. Þegar elstu börnin, sem flest hætta í leikskóla í ágúst, hefja grunnskólagöngu munu yngri börnin fá boð um leikskólavist.

Aldrei fleiri leikskólapláss í borginni
Frá árinu 2005 hefur leikskólaplássum í borginni fjölgað um 420, í borgarreknum og sjálfstætt starfandi leikskólum. Allir leikskólar borgarinnar eru fullmannaðir og fullsetnir. Aldrei fyrr hafa á þessum árstíma jafn fá börn á öðru ári beðið eftir því að komast í leikskóla, eða um 130.

Laus pláss hjá dagforeldrum
Flest þeirra 130 barna sem bíða eftir leikskólaplássi í borginni eru hjá dagforeldrum. Samkvæmt athugun sem gerð var í janúar eru 60-70 laus pláss hjá dagforeldrum í borginni, flest í Breiðholti og Grafarvogi. Auglýst hefur verið eftir fleiri dagforeldrum og þá sérstaklega í hverfum vestan Elliðaáa þar sem þá helst skortir.

177 dagforeldrar voru að störfum í borginni í febrúar 2010 og greiðir borgin niður með um 698 börnum hjá þeim.