Ævintýri alla daga
08.02.2010
Sagnaþulir, listamenn og leikskólabörn leiddu saman hesta sína á ráðstefnunni Þar sem gerast sögur og ævintýri sem fram fór á Degi leikskólans 6. febrúar. Ráðstefnan tókst vel í alla staði. Fundarsalurinn var þéttsetinn og gestir upplifðu skemmtilega blöndu fræða og framkvæmda, svo og flutnings ævintýrsins í frásögn, tónlist, myndlist og leikhúsi.
Dagskráin var metnaðarfull og lifandi, listamenn fóru á kostum og leikskólabörn gleymdu sér í listsköpun. Að lokinni ráðstefnu fóru gestir glaðir heim með ævintýri í hug og hjarta.