Skráning barna á frístundaheimili skólaárið 2010-2011
04.02.2010
Opnað hefur verið fyrir skráningar barna á frístundaheimili fyrir skólaárið 2010-2011. Skráning fer fram með rafrænum hætti á Rafrænni Reykjavík.
Líkt og áður njóta börn sem hefja nám í fyrsta bekk forgangs. Öðrum er úthlutað vistun í tímaröð umsókna.
Símaver borgarinnar (411-1111) aðstoðar fólk við innskráningu og umsóknir í Rafrænu Reykjavík. Einnig er hægt að leita til þjónustumiðstöðva borgarinnar og frístundamiðstöðva.