Leit


Netspjall

Tengill á Netspjall Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að fá beint samband við þjónustufulltrúa

Other languages

  • Thai pages
  • Polish pages
  • English pages 

Erlendir ferðamenn í Reykjavík aldrei ánægðari

18.12.2009

Alls höfðu 91% erlendra ferðamanna í Reykjavík góða eða frábæra reynslu af borginni á liðnu sumri. Þetta er betri árangur en nokkru sinni, samanborið við kannanir síðustu sumra, en kannanir hófust árið 2004.  Könnunina annaðist Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar fyrir Höfuðborgarstofu síðastliðið sumar, frá júní til ágúst og var úrtakið rúmlega 2.000 erlendir ferðamenn sem voru á leið úr landi í Leifsstöð. 

94% aðspurðra sögðust einnig myndu mæla með Reykjavík við aðra, sem er besta niðurstaða sem mælst hefur frá upphafi meðal sumargesta í  höfuðborginni.

Reynslan af Reykjavík sumarið 2009
þeir sem afstöðu tóku
Reynslan af Reykjavík sumarið 2009

Mæla með Reykjavík við aðra
þeir sem afstöðu tóku
Mæla með Reykjavík við aðra

Aukin aðsókn í afþreyingu
Þegar spurt er um þá afþreyingu sem gestir Reykjavíkur nýta sér kemur í ljós að 70% fóru á veitingahús og 57% versluðu, sem er með því hærra sem hefur mælst. 40% gesta völdu að sækja heim þá fjölbreyttu safna og sýningarflóru sem borgin býður upp á, og hefur það hlutfall aldrei mælst hærra. Hlutfall þeirra sem fara í dagsferðir um og frá Reykjavík hefur heldur aldrei mælst meira, en 15% fóru í dagsferð um Reykjavík og 34% í dagsferð frá Reykjavík.

Niðurstöður þessar sýna að ferðamenn stunda almennt meiri afþreyingu í borginni en áður.

Hvað gert í Reykjavík sumarið 2009
Hvað gert í Reykjavík sumarið 2009


Reykjavík hrein, örugg, skapandi og peninganna virði
Í könnuninni voru jafnframt settar fram nokkrar fullyrðingar sem gestirnir lögðu mat á. Í ljós kom að 91% voru sammála þeirri fullyrðingu að Reykjavík sé örugg borg, 86% telja að Reykjavík sé hrein borg og 76% voru sammála því að Reykjavík sé skapandi borg. Hafa þessar tölur aldrei mælst hærri yfir sumartímann.

Sérstaklega athyglisvert þykir að aldrei hefur hærra hlutfall sumargesta verið sammála þeirri fullyrðingu að í Reykjavík fáist mikið fyrir peninginn, eða 46%. Fullvíst má telja að veiking krónunnar árið 2008 og 2009 valdi þar mestu.
Einnig má leiða líkum að því að fyrrgreind almenn ánægja gesta og aukin aðsókn í afþreyingu tengist að einhverju leyti hagstæðu gengi krónunnar fyrir útlendinga.

Afstaða til fullyrðinga um Reykjavík
þeir sem afstöðu tóku
Afstaða til fullyrðinga um Reykjavík

„Reykjavík er peninganna virði (value for money)“
Afstaða til spurningarinnar sumrin  2007 til 2009
„Reykjavík er peninganna virði (value for money)“

Ísland og Reykjavík áberandi í erlendum fjölmiðlum
Ísland sem áfangastaður ferðamanna hefur verið áberandi í erlendum fjölmiðlum á þessu ári og hafa nokkrir stórir og virtir aðilar í ferðaútgáfu nefnt Ísland sem góðan kost til ferðalaga árið 2010.

Fyrirtækið Lonely Planet sem er leiðandi á sviði útgáfu ferðahandbóka í heiminum, setti nýverið Ísland efst á lista yfir hagstæðustu áfangastaðina árið 2010. Annað leiðandi fyrirtæki í ferðahandbókum, Dorling Kindersley, útgefendur Eyewitness Guides bókanna, nefnir Reykjavík sem tilvalinn stað til að heimsækja á næsta ári meðal annars vegna verðlags og aukins flugframboðs.