Skipulagsráð

Skipulagsráð (áður skipulags- og byggingarnefnd) starfar, í umboði borgarráðs, með þeim hætti sem nánar er kveðið á um í samþykkt fyrir nefndina, sbr. einnig 6. og 38. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og 44 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Borgarstjórn staðfesti samþykkt fyrir nefndina 21. mars 2002, sbr. breytingar 7. nóvember s.á.
Skipulagsráð mótar stefnu í skipulags- og byggingarmálum og tekur ákvarðanir og gerir tillögur til borgarráðs um skipulags- og byggingarmál á grundvelli fyrrgreindra heimilda. Jafnframt hefur nefndin eftirlit með að stefnumörkun og samþykktum hennar sé fylgt. Þá fer nefndin með önnur þau verkefni sem borgarráð felur henni.
Til þess að vinna að framangreindum markmiðum hefur nefndin m.a. með höndum eftirtalin verkefni:
Er borgarráði og öðrum borgaryfirvöldum til ráðuneytis á sviði skipulags- og byggingarmála. Hefur frumkvæði að gerð skipulagstillagna og skipulagsskilmála og gerir tillögur til borgarráðs um skipulagsáætlanir og breytingar á þeim, þ.m.t. skipulag umferðar. Gerir tillögur til borgarráðs að staðbundnum byggingarsamþykktum skv. 5. mgr. 37. gr. skipulags- og byggingarlaga. Þá getur nefndin óskað eftir að fá til umsagnar umsóknir, sem byggingarfulltrúa berast, sé um að ræða mannvirki sem hafa sérstakt gildi fyrir umhverfi sitt. Skipulagsráð afgreiðir, án staðfestingar borgarráðs, tiltekin verkefni skv. skipulags- og byggingarlögum á grundvelli heimildar 2. mgr. 44. gr. sveitarstjórnarlaga, sbr. 4. gr. samþykktar fyrir nefndina.
Verkefni nefndarinnar á sviði menningar- og umhverfismála eru m.a. þessi:
Veitir menningarmálanefnd umsagnir um mál er varða húsafriðun skv. ákvæðum laga um húsafriðun nr. 104/2001 og um staðsetningu hvers konar myndverka á almannafæri. Jafnframt getur nefndin gert tillögur til menningarmálanefndar um slík mál. Gerir tillögur til borgarráðs um fjárveitingar úr húsverndarsjóði, sbr. samþykkt borgarráðs 18. desember 2001, og um niðurfellingu fasteignaskatts friðaðra húsa skv. samþykkt borgarráðs 23. desember 1997. Veitir ár hvert viðurkenningu þeim aðilum sem skarað hafa fram úr hvað varðar snyrtimennsku og falleg mannvirki og sömuleiðis viðurkenningu fyrir góða hönnun og vandaðan frágang uppdrátta.
Nefndin er skipuð sjö fulltrúum kosnum af borgarstjórn og jafnmörgum til vara. Borgarstjórn kýs formann úr hópi kjörinna fulltrúa og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgarfulltrúi. Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og borgarstjórnar.
Borgarstjórn kaus í skipulagsráð 21. ágúst 2008:
( Uppfært 1. febrúar 2010 )
Aðalmenn:
Af BD-lista:
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður, julius.vifill.ingvarsson@reykjavik.is
Ragnar Sær Ragnarsson, ragnar@thg.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sigmundurdavid@gmail.com
Ásgeir Ásgeirsson, asgeir@tark.is
Af SV-lista :
Stefán Benediktsson, stefanb@ust.is steben@simnet.is
Björk Vilhelmsdóttir, bjork.vilhelmsdottir@reykjavik.is
Sóley Tómasdóttir, soley.tomasdottir@reykjavik.is
Varamenn:
Af BD-lista:
Kristján Guðmundsson, kgud@mmedia.is
Snorri Hjaltason, snorri@tsh.is
Brynjar Fransson, bb.ff@simnet.is
Lena Helgadóttir,
Af X-lista:
Sigurður Keiser Guðmundsson, kaiser@kaiser.is
Guðrún Erla Geirsdóttir gerlag@internet.is
Torfi Hjartarson, torfi@hi.is
Áheyrnarfulltrúi var tilnefndur Magnús Skúlason, magnusskulason@gmail.com
Varamaður: Gunnar Hólm Hjálmarsson, gunnarholm@simnet.is
Viðtöl hjá nefndarmönnum eru bókuð í Ráðhúsi Reykjavíkur, sími 411-1000, eða á netfangi viðkomandi aðila.
Skipulagsráð fundar einu sinni í viku að jafnaði, Borgartúni 12-14, Ráðssal frá kl. 9-12. Fundargerðir nefndar er hægt að nálgast hér.