Skipulagsmál

Skipulagsmál


Undir liðnum skipulagsmál er að finna fundargerðir frá embættisafgreiðslum skipulagsfulltrúa, mál í kynningu í þjónustuveri í Borgartúni 10-12 , s.s. breytingar á aðalskipulagi, nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagi og mál sem eru í grenndarkynningu, mál í vinnslu, nýjar og nýlega samþykktar deiliskipulagsáætlanir, yfirlit yfir Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024. Einnig er hér að finna Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, Þróunaráætlun miðborgar og deiliskipulag miðborgar. Jafnframt eru gefnar leiðbeiningar um gerð deiliskipulags fyrir skipulagsráðgjafa og kort um húsvernd í Reykjavík.

Breytingar hjá embætti skipulagsfulltrúa og þar með skipulagsmála hafa orðið í kjölfar samþykktar borgarráðs þ. 29. mars 2007. Í stað skipulagsfulltrúa hefur nú verið stofnað embætti skipulagsstjórans í Reykjavík sem tekið hefur við öllum réttindum og skyldum sem sem talin eru hlutverk skipulagsfulltrúa samkvæmt ákvæðum skipulags-og byggingarlaga nr. 73/1997. Þær meginskipulagsbreytingar hafa orðið í skipulagsmálum á sviðinu er að í stað embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa er nú embættisafgreiðslufundur skipulagsstjóra. Skipulagsstjóri er Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt.

Í stað embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa verða nú haldnir embættisafgreiðslufundir skipulagsstjóra. Hvorki form fundarins né tímasetning mun ekki breytast.

Skipting verkefna:

Skipulagsstjóri. Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt.

Deildarstjóri skipulagsmála. Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt.

Umhverfisstjóri. Björn Axelsson, landsslagsarkitekt.

Kjalarnes og miðborg. Bragi Bergsson, BS umhverfisskipulag.

Grafarvogur, Grafarholt, Höfðar og Reynisvatnsás. Guðfinna S. Erlingsdóttir, arkitekt.

Laugadalur,Úlfarsárdalur. Gunnhildur S. Gunnarsdóttir, arkitekt.

Sérverkefni. Jóhannes S. Kjarval, arkitekt.

Sérverkefni. Margrét Leifsdóttir, arkitekt.

Hlíðar og Árbær. Lilja Grétarsdóttir, arkitekt.

Vesturbær 107, Örfirisey , Breiðholt og Háaleiti. Þórarinn Þórarinsson, arkitekt.

Vesturbær 101 og íbúðarsvæði í Miðborg. Margrét Þormar, arkitekt.

Aðalskipulag og svæðisskipulag. Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur.

 

Skipulagsmálum er skipt í þrjú svið: Deiliskipulag, Þróun byggðar og Umhverfisskipulag.

Verkefni sem heyra undir Deiliskipulag eru:
- Umsjón með gerð deiliskipulags
- Embættisafgreiðslur í umboði skipulagsstjóra
- Undirbúningur ákvarðanatöku og tillögugerðar til skipulagsráðs
- Framfylgd ákvarðana skipulagsráðs í umboði skipulagsstjóra
- Ráðgjöf á sviði skipulags- og byggingarmála

Skipulagsstjóri, Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt, er yfirmaður Deiliskipulags.

Verkefni sem heyra undir Þróun byggðar eru:
- Endurskoðun og breytingar á svæðisskipulagi
- Endurskoðun og breytinga á aðalskipulagi
- Rannsóknir
- Umhverfismál / mat
- Gagnagrunnsmál / skipulagsmál
- Tengsl við LUKR
- Viðhald kortagrunna
- Skipulagssjá

Verkefnisstjórarnir Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt, og Haraldur Sigurðsson, skipulagsfræðingur stýra verkefnum Þróun byggðar.

Verkefni Umhverfisskipulags eru:
- Umhverfisþættir
- Græn svæði
- Útivistar og íþróttasvæði
- Útmörk borgar

Verkefnisstjóri, Björn Axelsson, landslagsarkitekt, stýrir verkefnum Umhverfisskipulags

borgartún 12-14
Skipulags- og byggingarsvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12 - 14
Sími: 411 3000
skipulag@reykjavik.is

skipbygg@rvk.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is