BETRA LOFT FYRIR ALLA

24.10.2007

Reykjavíkurborg hefur gefið út veggspjaldið Ryklaus Reykjavík með upplýsingum um helstu ókosti nagladekkja og hvaða hjólbarðar nýtist jafnvel og betur á götum borgarinnar. Ástæðan er sú að nagladekk spæna hratt upp malbik og valda svifryki sem getur haft áhrif á heilsufar fólks. Veggspjaldið er liður í því græna skrefi að vinna að betra lofti í borginni fyrir alla.

Á veggspjaldinu er svifryksmengun sett í samhengi við heilsufar borgarbúa - en vinnuhópur umhverfisráðuneytis og samgönguráðuneytis gaf út skýrslu í sumar þar sem svifryk er flokkað sem alvarlegt vandamál í þéttbýli. Svifryk er afar fíngert ryk sem svífur í andrúmsloftinu og á oftast rætur að rekja til bílaumferðar eða iðnaðar. Norrænar rannsóknir hafa sýnt að svifryksmengun fækkar lífdögum borgarbúa meira en umferðarslys og að rekja má 9 þúsund dauðsföll á Norðurlöndunum til svifryksmengunar.

Nýlega báðu yfirvöld í Tromsø í Noregi íbúa sína um að skilja bílana eftir heima og fara með öðru móti til og frá vinnu og skóla. Ástæðan var sú að flestir ökumenn höfðu skipt yfir á nagladekk þótt götur væru auðar, þurrt í veðri og stillur í lofti. Slík veðurskilyrði eru ávísun á svifryksmengun en nagladekkin spæna upp malbikið hundrað sinnum hraðar en aðrar dekkjategundir. Í febrúar 2007 var önnur hver bifreið í Reykjavík á nagladekkjum en leyfilegt er að aka á slíkum dekkjum frá 1. nóvember til 15. apríl ár hvert. Ef vetrarþjónusta borgarinnar og veðurfar í borginni er skoðuð kemur í ljós að önnur vetrardekk en nagladekk henta betur.

Nagladekk eru ekki eina uppspretta svifryks í borginni og því vill Reykjavíkurborg draga með ýmsu móti úr líkum á því að svifryksmengun fari yfir heilsuverndarmörk t.d. með því að rykbinda umferðaræðar, efla eftirlit með frágangi á framkvæmda- og byggingasvæðum, krefjast rykbindingar við niðurrif bygginga og efla upplýsingar um svifryk til almennings. Veggspjaldinu verður dreift á næstu dögum.

Tengill
Veggspjaldið Ryklaus Reykjavík

Vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar

Hreint loft í Evrópu / Clean Air For Europe

Upplýsingar um svifryk

Mótvægisaðgerðir gegn svifryki - skýrsla


Umhverfis-og samgöngusvið
Reykjavíkurborgar
Borgartúni 12-14
Sími: 411 8500
Afgreiðsla - 8:20 - 16:15
umhverfissvid@reykjavik.is
Upplýsingar um sviðið

Reykjavíkurborg - Þjónustuver: 4 11 11 11 - netfang: upplysingar@reykjavik.is