Fréttir
Suðurgata verður einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi en tvístefnugata fyrir hjólandi umferð. Þetta var samþykkti í umhverfis- og samgönguráði í vikunni. „Við vonum að þessi breyting bæti aðstæður fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur,“ segir Karl Sigurðsson formaður ráðsins og að einnig muni um leið draga úr umferðarhraða og hávaða.
Hafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum. Innkeyrsla fyrir bifreiðar sem þjóna fyrirtækjum í götunni er heimiluð frá Tryggvagötu.
Hagkaup hefur, í samráði við Matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að endurbæta umbúðamerkingar Jóa Fel humus þar sem ofnæmis- og óþolsvaldur er ekki skýrt merktur á umbúðum vörunnar.
Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur – innihaldsefni úr sesamfræjumEndurmerking vegna ofnæmis- og óþolsvaldsVilltar kanínur í borgarlandinu
Skoða fleiri fréttir