Fjölmenning í leikskóla

                                                                                                   veggspjald

Mikilvægt er að leikskólastarf í nútíma samfélagi endurspegli þann menningarlega margbreytileika sem þar er alla daga ársins. Fjölmenningarlegt leikskólastarf tekur mið af því að enginn er eins en allir geta verið með á sínum forsendum. Í því felst meðal annars að:

  • -Styrkleikur samfélagsins felst í fjölbreytni, það er í lagi að vera ólíkur öðrum.
  • -Nám, kennsla og samskipti eru án fordóma.
  • -Það er borin virðing fyrir öllum.
  • -Börn læra um heimamenningu hvers annars.
  • -Lögð er áhersla á að efla samvinnu og samkennd í barnahópnum.
  • -Leitast er við að byggja upp jákvæða sjálfsmynd allra barna þannig að þau geti sýnt styrkleika sinn og þekkingu.
  • -Leikefni og umhverfi barnanna sýnir fjölbreytni í allri sinni mynd.
  • -Unnið er með ólík tungumál og ritmál.
  • -Kennarar þekkja leiðir til að kenna íslensku sem annað mál.


Hugmyndafræðin sem liggur til grundvallar efni á þessum vef er að mestu ættuð frá Bretlandi og Bandaríkjunum. Meira um fjölmenningarlega hugmyndafræði .

Sjá einnig kynningarbækling um vefinn pdf

Hægt er að prenta veggspjaldið hér til hliðar út: Heimurinn er hér - Velkomin í leikskólann.

einnig veggspjaldið: Heimurinn er hér - Leikum saman 

Ljáðu mér orð- Myndræn orðabók

Ljáðu mér orð er myndræn orðabók, hugsuð sem hjálpartæki, til þess að auðvelda barni með annað móðurmál en íslensku að eiga samskipti við börn og fullorðna þegar það byrjar í leikskóla. Hægt er að nálgast orðabókina með því að smella hér: Ljáðu mér orð en mælt er með því að teknar séu myndir af barninu sjálfu í þeim athöfnum sem settar eru upp í bókinni. Leikskólar geta síðan bætt inn orðum og athöfnum að vild.

 

ATHUGIÐ:

Hér má finna fjölbreyttar leiðir til þess að auðvelda samskipti á milli leikskóla og foreldra sem ekki tala íslensku eða annað það tungumál sem nýtist í þeim samskiptum. 

 

Upplýsingar á milli heimilis og skóla

Gagnabanki með upplýsingum á milli heimilis og skóla er kominn á heimasíðu Leikskólasviðs. Þar er að finna orðalista á 10 tungumálum og fjölmörg bréf s.s. eins og: lokað vegna skipulagsdags, eyðublað v. ofnæmis, vettvangsferð, foreldraviðtal og margt fleira. Allar þýðingarnar eru bæði á íslensku og viðkomandi tungumáli og hægt er að fylla inn í eyðublöðin rafrænt. Efnið er vistað á síðunni: Nýir íslendingar.

Sumarnámskeið Ísbrúar

5. og 6. ágúst næstkomandi mun Ísbrú halda sjöunda sumarnámskeið sitt fyrir kennara á öllum skólastigum sem kenna nemendum með íslensku sem annað tungumál. Sjá auglýsingu hér.

 

 

.