Ylstrandargestir leggi við HR
21.07.2010
Síðustu daga hafa fjölmargir borgarbúar lagt leið sína á ylströndina í Nauthólsvík og er gert ráð fyrir að aðsóknin verði mikil í blíðviðrinu í dag. Undanfarið hefur því miður skapast talsverður umferðarvandi á þessum slóðum þar sem gestir hafa margir lagt í kanti Nauthólsvegar. Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar vill því benda ylstrandargestum á að leggja bílum sínum í stæðin við Háskólann í Reykjavík og koma þannig í veg fyrir að hætta skapist á Nauthólsveginum.